Sorpbrennsla
Sorpbrennsla er aðferð sem gripið er til í sorpstjórnun. Í upphafi var sorp brennt aðeins til að eyða því og minnka magn sorps sem fór í landfyllingu, en í dag er það einnig brennt til að framleiða orku sem er þá breytt í rafmagn og hita.
Brennsla er talin betri leið til að meðhöndla sorp en að setja það í landfyllingu, en ekki eins æskileg og endurvinnsla. Brennsla á heimilissorpi skilur eftir sér leifar í formi sindurs og ösku, sem svara til 15–20% heildarmassa sorpsins. Oft fara þessar aukaafurðir í landfyllingu en þær geta nýst sem fylliefni í vegagerð, en slíkt afnot er umdeilt vegna áhættu á að skaðleg efni berist í jarðveginn. Þar að auki leiðir sorpbrennsla til þess að þungmálmar eins og blý og kvikasilfur, mengunarefni eins og díoxín og sýruefni svo sem brennisteinsoxíð verði losnuð í nærumhverfið. Með reykgashreinsun og bættum brennsluaðferðum er þó hægt að lágmarka losun slíkra efna. Það má líta á heimilissorp sem jarðefnaeldsneyti vegna tilveru plastefna í því, þó að það standi að mestu leyti saman af lífrænu efni.
Sorpbrennsla á sér stað í stórum brennsluofni. Áður en sorpið fer inn í ofninn er það flokkað og aðeins brennanlegt efni skilað eftir. Ákveðin efni henta ekki brennslu en þau eru fjarlægð. Önnur efni gætu haft áhrif á brennsluna því þau geta takmarkað eða aukið loftmagnið í ofninum. Í besta tilfelli er sorpið flokkað áður en því er skilið til brennslustöðvarinnar og það sem hægt er að endurvinna meðhöndlað á viðeigandi hátt. Það er stöðugt fylgst með brennslustöðvum, bæði brennslunni sjálfri og reykgösunum sem eru losnuð við brennsluna, til að minnka eins og mögulegt er áhrif á umhverfið.
Tilraunir á sorpbrennslu voru fyrst gerðar í Þýskalandi á seinni hluta 19. aldar. Hún var tekin upp í miklum mæli í Svíþjóð á sjöunda áratugnum. Vinsældir hennar þar drógust saman eftir áhyggjur um afleiðingar losunar díoxíns en sorpbrennslan er aftur á uppleið í Svíþjóð, sem hefur nú byggt yfir 30 sorpbrennslustöðvar. Auk þess að brenna sitt eigið heimilissorp flytja Svíar það inn frá öðrum evrópskum löndum.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Avfallsförbränning“ á sænsku útgáfu Wikipedia. Sótt 7. maí 2015.