[go: up one dir, main page]
More Web Proxy on the site http://driver.im/Fara í innihald

Isaac Newton

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Málverk af Isaac Newton eftir Godfrey Kneller frá 1689.

Sir Isaac Newton (25. desember 164220. mars 1727)[a] var enskur stærðfræðingur, eðlisfræðingur, stjarnfræðingur, náttúruspekingur og gullgerðarmaður. Hann bar höfuð og herðar yfir flesta samtímamenn sína og gjörbylti stærðfræði og eðlisfræði 17. aldar. Framlög hans til þessara fræða voru meðal annars örsmæðareikningur, aflfræðin, þyngdarlögmálið, lögmálið um hreyfingu reikistjarna á braut, tvíliðuröðin (binomial series), aðferð Newtons í tölulegri greiningu auk mikilla fræða um lausnir jafna og fleira. Hann var mikilvægur boðberi upplýsingarinnar.

Newton sagðist þola illa gagnrýni og þess vegna birti hann ekki niðurstöður rannsókna sinna fyrr en seint og um síðir og sumar aldrei. Sem dæmi um þetta er sagt að Edmund Halley, sem halastjarna Halleys er kennd við, hafi árið 1684 stungið upp á því við Newton að hann kannaði hvernig það aðdráttarlögmál væri, sem leiddi af sér niðurstöður Keplers um hreyfingar reikistjarnanna. Þá svaraði Newton því til, að þetta væri hann búinn að leiða út fyrir mörgum árum. Það væri lögmálið um andhverfu fjarlægðarinnar í öðru veldi. Halley var undrandi á að Newton skyldi ekki hafa gefið þetta út, og skoraði á hann að birta niðurstöður rannsókna sinna. Newton lét loks af því verða árið 1687, er hann gaf út höfuðrit sitt Philosophiae Naturalis Principia Mathematica. Hin frægu þrjú lögmál Newtons, sem hann setti fram í bókinni, leggja grunninn að klassískri aflfræði, en 2. lögmálið gefur tengsl krafts og hröðunar á þann veg að kraftur sé jafn margfeldi massa og hröðunar, það er . Lögmál Newtons stóðu óhögguð í rúm 200 ár, en afstæðiskenningin sýndi að breyta þurfti þeim þegar fengist var við hluti sem fara með hraða, sem er nærri ljóshraða.

Meint viðkvæmni Newtons fyrir gagnrýni kom líka í veg fyrir að hann birti niðurstöður sínar í örsmæðareikningi þar til eftir að Leibniz hafði gert grein fyrir sínum niðurstöðum. Nú þykir nokkuð víst að Newton gerði uppgötvanir sínar á undan Leibniz, en lokaði þær niðri í skúffu. Leibniz hafði aldrei heyrt um þær getið er hann gerði sínar uppgötvanir fáum árum síðar og birti niðurstöðurnar strax. Þá loks dreif Newton sig í að koma sínum útreikningum á framfæri. Af þessum sökum eru þeir báðir taldir upphafsmenn örsmæðareiknings og er ekki gert upp á milli þeirra hvað það varðar.

Newton smíðaði fyrsta nothæfa spegilsjónaukann og þróaði litafræði með athugunum sínum á því hvernig hvítt ljós brotnar í litróf sýnilegs ljóss þegar það fer gegnum glerstrending. Hann gerði grein fyrir tilraunum sínum með ljós í bókinni Opticks sem kom út árið 1704. Hann setti einnig fram reynslulögmál um kælingu, gerði fyrstu fræðilegu útreikningana á hljóðhraða og setti fram hugmyndina um newtonskan vökva. Auk vinnu sinnar við örsmæðareikning lagði stærðfræðingurinn Newton framlög til rannsókna á veldaröðunum, leiddi tvíliðuregluna út fyrir aðrar tölur en heiltölur, þróaði aðferð til að námunda núllstöðvar falls og flokkaði flesta ferla þriðja stigs margliða.

Newton kenndi við Trinity College og var annar Lucas-prófessor í stærðfræði við Cambridge-háskóla. Hann var kristinn en hafði óhefðbundnar trúarskoðanir og hafnaði í laumi þrenningunni. Hann neitaði að vígjast til ensku biskupakirkjunnar líkt og flestir kennarar við skólann gerðu á þeim tíma. Fyrir utan rannsóknir sínar á sviði stærðfræði fékkst Newton við gullgerðarlist og rannsóknir á tímatali Biblíunnar, en verk hans á þeim sviðum voru ekki gefin út fyrr en löngu eftir að hann lést. Hann var nátengdur Viggum í pólitík og sat tvisvar um stutt skeið á þingi sem þingmaður Cambridge-háskóla, 1689-1690 og 1701-1702. Anna Bretadrottning sló hann til riddara árið 1705. Síðustu þrjá áratugina sem hann lifði bjó hann í London þar sem hann starfaði sem umsjónarmaður (1696-1699) og síðan meistari (1699-1727) Konunglegu myntsláttunnar. Hann var líka forseti Konunglega breska vísindafélagsins 1703 til 1727.

SI-mælieining krafts, njúton, var nefnd í höfuðið á honum.

Útgefin meðan hann lifði

[breyta | breyta frumkóða]

Útgefin eftir dauða hans

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Samkvæmt gregoríska tímtalinu sem nú er í notkun fæddist Newton 4. janúar 1643 og dó 31. mars 1727.
  1. Anders Hald 2003 – A history of probability and statistics and their applications before 1750 – 586 pages Volume 501 of Wiley series in probability and statistics Wiley-IEEE, 2003 Geymt 2 júní 2022 í Wayback Machine
  2. „Natures obvious laws & processes in vegetation – Introduction“. The Chymistry of Isaac Newton. Afrit af uppruna á 17. janúar 2021. Sótt 17. janúar 2021. Umrituð á netinu hjá Indiana-háskóla.
  3. Whiteside, D.T., ed. (1974). Mathematical Papers of Isaac Newton, 1684–1691. 6. Cambridge University Press. pp. 30–91. Geymt 10 júní 2016 í Wayback Machine
  4. „Sýningagripur í Museum of London með mynd af titilsíðunni eftir eintaki John Flamsteed af útgáfunni frá 1687“. Museumoflondon.org.uk. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. mars 2012. Sótt 16. mars 2012.
  5. Kom út nafnlaust sem greinin „Scala graduum Caloris. Calorum Descriptiones & signa.“ í Philosophical Transactions, 1701, 824 Geymt 21 janúar 2020 í Wayback Machine–829; ed. Joannes Nichols, Isaaci Newtoni Opera quae exstant omnia, vol. 4 (1782), 403 Geymt 17 júní 2016 í Wayback Machine–407. Mark P. Silverman, A Universe of Atoms, An Atom in the Universe, Springer, 2002, p. 49. Geymt 24 júní 2016 í Wayback Machine
  6. Newton, Isaac (1704). Opticks or, a Treatise of the reflexions, refractions, inflexions and colours of light. Also two treatises of the species and magnitude of curvilinear figures. Sam. Smith. and Benj. Walford. Afrit af uppruna á 24. febrúar 2021. Sótt 17. mars 2018.
  7. 7,0 7,1 7,2 7,3 7,4 7,5 7,6 Pickover, Clifford (2008). Archimedes to Hawking: Laws of Science and the Great Minds Behind Them. Oxford University Press. bls. 117–118. ISBN 978-0-19-979268-9. Sótt 17. mars 2018.
  8. Swetz, Frank J. „Mathematical Treasure: Newton's Method of Fluxions“. Convergence. Mathematical Association of America. Afrit af uppruna á 28. júní 2017. Sótt 17. mars 2018.