Fuzûlî
Útlit
Fużūlī (arabíska: فضولی) var höfundarnafn skáldsins Muhammad bin Suleyman (محمد بن سليمان) (um 1483 – 1556). Hann er oft talinn helsti höfundur dívanhefðarinnar í tyrkneskum bókmenntum. Ljóðasafnið hans er ritað á þremur tungumálum aserbaídsjantyrknesku, persnesku og arabísku.