Mac Pro (2023) og Mac Pro (Rack, 2023) aflgjafi
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Mac Pro (2023)
Mac Pro (Rack, 2023)
Verkfæri
Phillips-skrúfjárn nr. 1
Stillanlegur átaksmælir (0,3–1,2 Nm)
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Torx Plus 8IP 89 mm biti
Losun
Notið 0,3–1,2 Nm stillanlega átaksmælinn og 8IP bita til að fjarlægja 8IP-skrúfuna (923-03408) úr jarðfestingu aflgjafans.
Notið Phillips-skrúfjárnið nr. 1 til að losa fjórar Phillips-skrúfur nr. 1 af vinstri klemmuplötunni að fullu. Fjarlægið klemmuplötuna og geymið hana fyrir samsetningu.
Athugið:
Setjið slétta enda svarta teinsins fyrir aftan vinstri hlið aflgjafans og haldið um hægri hliðina. Togið síðan í aflgjafann frá báðum hliðum, beint út úr rúmrammanum.
Samsetning
Mikilvægt
Athugið hvort einhverjar skemmdir eða misfellur séu á aflgjafaþétti áður en aflgjafanum er komið fyrir aftur.
Setjið aflgjafann í rúmrammann eins og sýnt er. Ýtið þétt og jafnt þar til aflgjafinn er kominn alveg inn.
Stillið herslugildi 0,3–1,2 Nm stillanlega átaksmælisins á 0,55 Nm. Notið stillanlega átaksmælinn og 8IP-bitann til að skrúfa 8IP-skrúfuna (923-07096) aftur í jarðfestingu aflgjafans.
Setjið vinstri klemmuplötuna eins og sýnt er. Notið síðan Phillips-skrúfjárnið nr. 1 til að herða fjórar Phillips-skrúfur nr. 1 á klemmuplötunni að fullu.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu:
Mac Pro (2023)
Mac Pro (Rack, 2023)