John Duns Scotus
John Duns Scotus (u.þ.b. 1266 – 8. nóvember 1308) var skoskur fyrirlesari og skólaspekingur, og einn af helstu guðfræðingum og heimspekingum hámiðalda. Hann fékk viðurnefnið Doctor Subtilis vegna þess hve mönnum þótti hann beita gegnumlýsandi og hárfínni rökhugsun.
John Duns Scotus | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | um 1266 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Miðaldaheimspeki |
Skóli/hefð | Skólaspeki |
Helstu viðfangsefni | trúarheimspeki, frumspeki, þekkingarfræði, rökfræði, siðfræði |
Heimspekingar 16. aldar höfðu ekki nærri því jafn mikið álit á honum og menn fyrri alda, og litu á hann sem glammrandi sófista. Það varð til þess að lærðir menn í Bretlandi tóku að nefna tornæma nemandur sína (tossana) eða tornæmt fólk yfirleitt, „dunce“, en það er leitt af miðnafni hans (sbr. Duns<dunce). Einnig var og er talað um „dunce cap“ á ensku, þ.e. tossahúfuna (eða tossaspísshattinn) sem tíðkaðist á Bretlandi og víðar, alveg fram á 20. öld.