Hornstrandir
friðland á norðanverðum Vestfjörðum
Hornstrandir eru nyrsti hluti Vestfjarðakjálkans. Hinar eiginlegu Hornstrandir ná frá Geirólfsgnúpi í austri og voru áður taldar ná vestur að Kögri en nú eru Aðalvík og víkurnar austan hennar oftast einnig taldar til Hornstranda og þær ná þá að Rit vestan Aðalvíkur. Eftir að allt svæðið norðan Skorarheiðar var gert að friðlandi árið 1975 hefur Hornstrandanafnið tekið að færast yfir á allt friðlandið, einnig Jökulfirði.
Töluverð byggð var á Hornströndum fyrr á öldum en hún lagðist af um miðja 20. öld, nema hvað vitavörður var á Hornbjargsvita, í Látravík austan Hornbjargs, til 1995. Þrjú mikil fuglabjörg eru á Hornströndum, Hornbjarg, Hælavíkurbjarg og Riturinn.
Firðir og víkur í Hornstrandafriðlandi
breytaHornstrandir
- Kjaransvík
- Hlöðuvík
- Hælavík
- Hornvík
- Látravík
- Smiðjuvík
- Barðsvík
- Bolungavík
- Furufjörður
- Þaralátursfjörður
- Reykjarfjörður nyrðri
Aðrar víkur og firðir
Tenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hornstrandir.
- Kort Landmælinga Íslands af Hornströndum
- Hornstrandir; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1939
- Kögur og Horn og Heljarvík; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1980
- Hornstrandir; grein í Morgunblaðinu 1986
- Með Útivist um Hornstrandir; grein í Lesbók Morgunblaðsins 2000
- Auglýsing um friðland á Hornströndum 1985
- Kort af friðlandinu á Hornströndum
- Kort Landmælinga Íslands af Hornströndum
- Undir Axarfjalli, Lesbók Morgunblaðsins, 13. tölublað (05.04.1970)