[go: up one dir, main page]
More Web Proxy on the site http://driver.im/

Hagstofa Íslands

sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem safnar, greinir og kynnir tölulegar upplýsingar um hagi Íslands

Hagstofa Íslands eða Hagstofan er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir Forsætisráðuneytið.[1] Hagstofan er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu og hefur forystu um framkvæmd hennar og samskipti við alþjóðastofnanir á þessu sviði. Hagstofustjóri er Hrafnhildur Arnkelsdóttir. Hagstofan var stofnuð með lögum frá Alþingi árið 1913 og tók til starfa árið 1914. Hún er því ein elsta stofnun landsins. Þann 1. janúar 2008 var Hagstofan lögð niður sem ráðuneyti en varð þess í stað sjálfstæð stofnun. Starfsemi þjóðskrár, sem annast almannaskráningu, var flutt frá Hagstofu Íslands til dómsmálaráðuneytis 1. júlí 2006.

Hagstofa Íslands er miðstöð hagskýrslugerðar á Íslandi og gefur hún út hagtölur um flest svið samfélagsins. Hagstofan reiknar vísitölur m.a. launavísitölu, byggingarvísitölu og vísitölu neysluverðs en tólf mánaða breyting á vísitölu neysluverðs er það sem nefnt er verðbólga. Þá reiknar stofnunin hagvöxt, mannfjölda og lífslíkur svo eitthvað sé nefnt. Hagstofan gefur einnig út þjóðhagsspá.

Hagstofan á í víðtæku alþjóðlegu samstarfi við fjölmargar alþjóðastofnanir en opinber hagskýrslugerð er í eðli sínu alþjóðleg starfsemi, enda er samstarf milli ríkja forsenda þess að hægt sé að bera saman ólík lönd með samræmdum hætti. Helstu samstarfsaðilar Hagstofunnar erlendis eru;

Hagstofan starfar eftir ýmsum verklagsreglum sem eiga að tryggja að hagtölur séu óhlutdrægar, gegnsæjar og að jafnræðis og sanngirnis sé gætt í hvívetna:

Hagstofan er til húsa í Borgartúni 21a í Reykjavík.

Tilvísanir

breyta
  1. Heimasíða Hagstofu Íslands Geymt 1 október 2012 í Wayback Machine, Um Hagstofuna (Skoðað 14.12.2013)

Tengill

breyta
   Þessi stjórnmálagrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.