[go: up one dir, main page]
More Web Proxy on the site http://driver.im/Fara í innihald

Yoweri Museveni

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Yoweri Museveni
Museveni árið 2015.
Forseti Úganda
Núverandi
Tók við embætti
29. janúar 1986
ForsætisráðherraSamson Kisekka
George Cosmas Adyebo
Kintu Musoke
Apollo Nsibambi
Amama Mbabazi
Ruhakana Rugunda
Robinah Nabbanja
VaraforsetiSamson Kisekka
Specioza Kazibwe
Gilbert Bukenya
Edward Ssekandi
Jessica Alupo
ForveriTito Okello
Persónulegar upplýsingar
Fæddur15. september 1944 (1944-09-15) (80 ára)
Ntungamo, Úganda
StjórnmálaflokkurÞjóðarandspyrnuhreyfingin (enska: National Resistance Movement, svahílí: Harakati za Upinzani za Kitaifa)
MakiJanet Kainembabazi (g. 1973)
BörnMuhoozi, Natasha, Patience, Diana
HáskóliHáskólinn í Dar es Salaam
StarfStjórnmálamaður

Yoweri Museveni (f. 15. september 1944) er úgandskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Úganda frá árinu 1986. Museveni var þátttakandi í uppreisnarhreyfingum sem steyptu af stóli ríkisstjórnum Idi Amin (1971–79) og Miltons Obote (1980–85).[1][2]

Á tíunda áratugnum naut Museveni talsverðrar hylli á vesturlöndum sem fulltrúi nýrrar kynslóðar afrískra leiðtoga. Á forsetatíð Museveni hefur tilölulegur stöðugleiki og hagvöxtur ríkt í Úganda. Hins vegar hafa valdaár hans einnig einkennst af afskiptum Úganda af borgarastríði í Kongó og öðrum hernaðarátökum við Stóru vötnin. Þar á meðal má nefna uppreisn Andspyrnuhers Drottins í norðurhluta Úganda, sem kostaði fjölda mannslífa. Museveni hefur einnig staðið fyrir bælingu á pólitísku andófi og hefur gert breytingar á úgöndsku stjórnarskránni til þess að nema úr gildi takmarkanir á fjölda kjörtímabila sem forsetinn má sitja (2005) og aldurstakmark á forsetaembættið (2017) til þess að framlengja valdatíð sína.

Árið 2023 samþykkti Museveni ströng lög gegn samkynhneigð í Úganda. Samkvæmt lögunum getur það að „taka þátt í sam­kyn­hneigðu at­hæfi“ varðað lífstíðarfang­elsi. Svokölluð „samkynhneigð af ásetningi“ getur varðað dauðarefsingu.[3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „Museveni myndar nýja ríkisstjórn“. Morgunblaðið. 31. janúar 1986. Sótt 11. október 2018.
  2. „Museveni forseti í 30 ár“. RÚV. 26. janúar 2018. Sótt 11. október 2018.
  3. „Forseti Úganda samþykkir lög gegn samkynhneigð“. mbl.is. 29. maí 2023. Sótt 29. ágúst 2023.


Fyrirrennari:
Tito Okello
Forseti Úganda
(29. janúar 1986 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.