[go: up one dir, main page]
More Web Proxy on the site http://driver.im/Fara í innihald

líf

Pending
Úr Wikiorðabók, frjálsu orðabókinni
Sjá einnig: Líf

Íslenska


Fallbeyging orðsins „líf“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall líf lífið líf lífin
Þolfall líf lífið líf lífin
Þágufall lífi lífinu lífum lífunum
Eignarfall lífs lífsins lífa lífanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

Nafnorð

líf (hvorugkyn); sterk beyging

[1] Líf er vandmeðfarið hugtak í líffræði þar sem skilgreiningin á því er á reiki og hefur oft verið deiluefni. Auk þess er það einnig notað um líferni og ævi lífveru sem ekki er fjallað sérstaklega um hér.
Framburður
IPA: [liːv]
Andheiti
[1] dauði
Orðtök, orðasambönd
[1] á lífi
[1] bjarga lífum
[1] halda lífi í einhverjum
[1] láta lífið (deyja)
[1] lífs eða liðinn
[1] taka einhvern af lífi
Afleiddar merkingar
[1] líffræði, líffræðingur, líffærafræði, líffæri, lífgjöf, lífgun, lífgunartilraun, líflát, lífsábyrð, lífsbarátta, lífsflótti, lífsglaður, lífsháski, lífshætta, lífshættir, lífsleiði, lífsmark, lífsnauðsyn, lífsorka, lífsregla, lífsreynsla, lífsskilyrði, lífsskoðun, lífsspeki, lífsstarf, lífsstíll, lífsuppeldi, lífsviðhald, lífsviðhorf, lífsviðurværi, lífsþreyta, lífsþægindi, líftóra, líftrygging, lífvera, lífvænlegur, lífvörður, lífæð
Sjá einnig, samanber
dýr, sveppir, plöntur, fruma
Dæmi
[1] „Með nýrri tækni og nýjum lyfjum er oft hægt að bjarga lífi og lengja það.“ (Læknablaðið.isWikiorðabók:Bókmenntaskrá#Læknablaðið.is: Heilsutengd lífsgæði Íslendinga)

Þýðingar

Tilvísun

Líf er grein sem finna má á Wikipediu.
Wikivitnun hefur upp á að bjóða safn tilvitnana á síðunni: líf
Icelandic Online Dictionary and Readings „líf